UGG Australia sagan byrjaði 1978 þegar Brian Smith ungur brimbrettamaður frá Ástralíu fór í ferð til Bandaríkjanna með poka fullan að gæruskinnsstígvélum. Eftir að hann fann nýtt heimili meðal brimbrettamanna í California fór UGG Ástralía vörumerkið að taka á sig mynd. Deckers Outdoor Corporation eignuðust UGG Ástralía árið 1995. Árið 1998 hafði vörulínan vaxið í að vera tvær tegundir af stígvélum, fjórar af inniskóm og nokkrir hversdags skór. UGG var orðinn lúxus skófatnaður, og með skýrum og viðurkenndum dreifingarkerfum og hágæða tískumarkaðsetningu.
Umfjöllun fjölmiðla jókst og var fjallað um Ugg í vinsælustu tískutímaritum heims. Viðskiptin héldu stöðugt áfram að vaxa um leið og vörumerkið varð þekktara. Sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey er meðal þeirra sem lofsamað hefur skóna og verið frábær auglýsing. Árið 2000 var Ophra sent par af Ultra boots. Henni líkuðu skórnir svo vel að hún keypti 350 pör fyrir allt starfslið sitt. Síðan gerði Otrah, Ultra Boots að aðalefninu í einum af hinum þekktu þáttum sínum Oprah’s Favorite Things.
Þrem árum seinna valdi Oprah UGG Australia í annað sinn. Þá gerði hún Baby Pink og Baby Blue Classic Boots að aðalefninu. Þátturinn fór í loftið í nóvember og um leið urðu stígvélin að “verð að fá” vöru í Bandaríkjunum.
Eldingu laust niður í þriðja skiptið árið 2005 þegar Oprah kynnti Uptown stígvélin í “Oprah’s Favorite Things.” Sagan um Ugg var farin að hljóma eins og ævintýri. Árið 2003 hlaut UGG titilinn ”Skótegund ársins” og þótti hafa skapað algerlega nýja línu innan skófatnaðar. Síðan þá má sjá gæruskinns skófatnað á ferðinni í Milano, París og New York; og það byrjaði allt á ströndinni í Ástralíu.

